Meinvill í myrkrunum

...and all of the angels..

04 janúar 2003

Ýmis próf
Ég fór inn á femin og þar er hægt að taka þetta fína próf til að sjá hvort maður sé leiðtogi. Mér var farið að detta í hug að ég gæti orðið önnur Ingibjörg Sólrún en fótunum var snarlega kippt undan mér með það. Mér finnst að þeir mættu orða útkomuna svoldið þannig að fólki sárni ekki. Mér hreinlega daubrá "Þú er meðalmaður". Fyrst hélt ég að þetta væri bull og niðurstöðurnar mínar hefðu ruglast við einhverjar aðrar, en nei þetta reyndist rétt. Ég er meðalmaður!!! Ekki einu sinni meðal kona, nei nei bara venjulegur meðalmaður. Það á sem sagt ekki eftir að verða neitt úr mér. Ég er þessi meðal jón í meðal vístölu fjölskyldu (sem er kannski ekki alveg rétt ég held að fjöldskylda mín teljist seint til meðal manna og hana nú) en ég er meðal. Ég fékk jafnmikið sjokk og eftir að ég tók gáfnaprófið og kom út með rétt meðal greind. Það var hryllilegt sjokk. Foreldrarnir búnir að telja mér trú um það alla ævi að ég sé stórklár en þarna stóð svart á hvítu að ég rétt skríð yfir meðal. Og eins og allir vita þá lýgur tölvan ekki, nei ekki frekar en Mogginn, málgagnið sem ég lærði að lesa í. Ég reyndi að telja mér trú um að þetta væri vegna þess að prófið væri á ensku og ég hefði ekki skilið það nógu vel. Það var gott að trúa þessu en það stóð ekki lengi. Haukurinn komst á snoðir um þetta hryllingspróf og ákvað að taka það líka þó ég reyndi að vara hann við (vildi ekki að hann fengi svona sjokk ekki víst hann hefði þolað það). En hvað gerðist????? Jú hann fékk auðvitað hærri útkomu. Og ekki nóg með það að hann fengi hærra en ég heldur fékk hann útkomu sem flokkast undir þokkalega greind. HuH. Ég er sem sagt meðalmaður með létt liðlega meðalgreind og verð bara að sætta mig við það hvort sem mér líkar betur eða verr. Nú á ég bara eftir að taka alkaprófið og sjá hvort ég sé alki líka, það væri nú frábært. Meðalmaður með rétt meðalgreind og alkoholtendensa. úff!! Hefði kannski frekar átt að ákveða að hætta að drekka frekar en hætta að reykja. Er nefnilega viss um að ég kem ekki vel út í þessu prófi.

03 janúar 2003

Þá er komið að nýjum fyrirheitum og betra lífi í framhaldi af því. Ég er auðvitað búin að standa á stokk (fann að vísu engan stokk þannig að ég notaði bara skúringafötuna en þarf nú að kaupa aðra því af einhverjum ástæðum kom gat á hana í miðjum áramótafyrirheitalestri mínum). Ég byrjaði á því að lofa að taka mig á varðandi hreyfingu en tók það samt til baka því ég hreyfi mig alveg fullt. Ég geng tvisvar á dag!! Á morgnana og kvöldin!! Á morgnana labba ég niður af þriðju hæð og alla leið yfir bílastæðið og sest í bílinn minn (jusually alveg dauðþreytt eftir þessa hreyfingu svona án þess að hita upp). Síðan þegar ég er komin í vinnuna geng ég upp heillangar tröppur og yfir trukkastæðið, í gegnum fyrirtækið og alveg inn að borðinu mínu þar sem ég hníg niður örmagna eftir þessi átök. Á kvöldin geng ég síðan til baka í bílinnog enda á því að skrönglast aftur upp á þriðju hæð og til að bæta líðanina þá þarf ég yfirleitt að losa blöðruna á þessum tímapunkti!!! Suma dagana geng ég meira segja meira en þetta. það er þegar það hefur verið næsturfrost og ég þarf að skafa minn öðlingsbíl. Þá bæti ég svona skafabílaaðmorgnidansi við þessa daglegu hreyfingu. Það sér hver heilvita maður að ég þarf ekki að auka við neina hreyfingu. Ég tók þetta því aftur út af fyrirheitaskránni minni.
Hvað er þá eftir? Jújú borða minna svo ég mjókki aftur í mína kvenlegu stærð! Úff það verður ekki auðvelt. Annars borða ég ekkert svo mikið! Ég er búin að finna fullt af eyðum á deginum þar sem ég gæti verið að borða en geri það ekki (yfirleitt er það vegna þess að ég þarf að vinna líka og hef því ekki tíma til að borða). Ég held því að þetta sé ekki raunhæft markmið og verða að finna annað. HÆTTA AÐ REYKJA!!!! Hah það verður auðvelt. Ég get nú bara ekki annað en hlegið því þetta verður svo auðvelt. Það er kominn þriðji jan og enn langar mig ekki að reykja neitt (ekki frekar en venjulega þar sem ég hef aldrei reykt). Þetta verður auðvelt markmið tralala.
Hmm hvað meira? (Það var á þessum tímapunkti sem það var farið að braka í skúringafötunni)!
Sem sagt eitt áramótaheit: Að hætta að reykja............

Jæja þá eru commentin komin inn, AFTUR. og nú ætla ég ekki að reyna að koma þeim á annan stað alla vega ekki fyrr en geðheilsa mínhefur lagast aðeins. Þau hafa dottið út og komið inn aftur alveg eins og stjórnmálamenn í stuði. Alveg óþolandi. Við skulum sjá hvað setur og snúa okkur að seríus bloggi !

Þetta er meira dótið. Ég sem hélt í fáfræði minni að ég væri reglulega flínk. En það er EKKI svo. Ég er búin að eyða heilum morgni í að reyna að koma commentum á réttan stað en það gengur ekki. Þau eru horfin og ég veit ekki hvert. DRASLLLL


Powered by Blogger