Meinvill í myrkrunum

...and all of the angels..

15 júlí 2007

Við erum að lenda aftur! Við erum búin að vera í einhverri sæluvímu síðan á fimmtudagskvöld og í gær hittum við hópinn okkar og fórum að ræða væntanlega ferð og þá sökk þetta endanlega inn. OH MÆ GOD! Við eigum litla dóttur í Kína. Litla dóttur sem er þegar orðin all sjálfstæður persónuleiki og er t.d. sögð mjög mannblendin og ÞVER! Ha? Þver? Skil það nú ekki alveg eins og við Skakki erum nú lítið þversum haha. Hún virðist vera mjög dugleg og fer t.d. seinna að sofa á kvöldin en við (ok smá orðum aukið en hún fer samt mun seinna að sofa en íslensk smábörn, verður gaman fyrir þverkálfa fjölskylduna tilvonandi að díla við það hihi).


Stressið sem fylgdi símtalinu góða var ólýsanlegt. Meðan ég beið eftir að Skakki HJÓLAÐI heim þá þeyttist ég um íbúðina og leitaði að einhverju sem skipti engu máli, ég vissi ekkert hvað ég var að gera. Ég mundi samt eftir myndavél en það er bara af því ég beið svo lengi eftir honum. Á myndinni hér að neðan erum við að bíða eftir að vera kölluð inn til að fá myndirnar okkar og eins og sést erum við EKKERT stressuð að sjá. Bæði með samanherpta líkamstellingu og úti að aka. Þegar við vorum svo loksins kölluð inn og G spurði hvort við vildum fyrst fá upplýsingarnar eða fá að sjá myndirnar. Myndirnar takk! Og þegar hún lagði þær á borðin þurrkaðist herbergið út og það hvarf allt nema myndirnar á borðinu. Þetta litla alvarlega andlit sem starði á okkur af myndunum og á þessari stundu varð mér ljóst að ég mundi ganga í gegnum eld og brennistein fyrir þetta barn. Og samt hef ég aldrei séð hana nema á mynd ;) Hvernig verð ég þegar við fáum hana í fangið?


Það eru 8-9 vikur þar til við förum út. Það þarf ýmislegt að gera áður en lagt er af stað þannig að ekki veitir af tímanum. Við þurfum að kaupa fleiri föt. Hún er eldri en við reiknuðum með þannig að minnstu fötin passa ekki en það er allt í lagi. Við kaupum bara önnur. Það verður skemmtilegt að fara og kaupa föt á barn sem ekki er lengur bara til í huganum á mér heldur er komið andlit og persóna. Sjálfstæður lítill einstaklingur.


Já og eitt enn. Við förum í september. Nákvæmlega einu ári síðar en við reiknuðum með. Ekki september 2006 heldur september 2007 og... í Kína er misheitt þar sem þetta er ógnarstórt land. Það eru samt þrír staðir sem eru taldir þeir allra heitustu og... og þetta er einn þeirra haha það verður gaman fyrir okkur rauðþrútnu albínóana sem förum inn þegar hitinn fer yfir 15 stig...



Anna og Skakki bíða eftir að komast að:

script type="text/javascript" src="http://www.haloscan.com/load.php?user=annakr"> << Til baka


Powered by Blogger