Meinvill í myrkrunum

...and all of the angels..

01 mars 2006

Hef þjáðst að bloggleti að undanförnu og ekki nennt að rífa mig upp úr því. Hef enda verið með einhverja kvefdruslupest og það dugði ekki einu sinni að fara í gönguferð og anda að mér hreinu lofti. Nei þessi var bara drepin með rúmlegu, er að vísu ekki alveg horfin en ég tímdi ekki að liggja í rúminu í dag þar sem í dag var fyrsti tíminn með væntanlegum einkaþjálfa. Úff maður, ég fann strax hvar mig vantar æfingar, oj bara. Að vísu var vöknunartíminn einn og sér alveg nóg til að gera veður út af, vaknaði klukkan 5.55 til að vera mætt á réttum tíma. Þarf að vakna fyrr ef ég á að ná að hita upp áður eins og þjálfarinn vill að við gerum. OH mæ God það tekur því varla að fara að sofa. En þetta er nú bara einn mánuður og ef ég lifi hann ekki af þá er ég meiri aumingi en ég trúi sjálf!

script type="text/javascript" src="http://www.haloscan.com/load.php?user=annakr"> << Til baka


Powered by Blogger