Meinvill í myrkrunum

...and all of the angels..

24 febrúar 2003

Uss það er kominn tími til að tengja..ég hef ekki skrifað í marga marga daga...
Ýmislegt hefur á daga mína drifið síðan síðast, ég fór t.d. í vinnuferð til Eyja með Armour og það var mjög gaman. Eyjar standa alltaf fyrir sínu. Við vorum að vísu að vinna allan tímann (2 daga) en ég skaust þó aðeins í heimsókn til Auðar og kíkti á hana. Stoppaði að vísu mjög stutt því ég var að niðurlotum komin vegna þreytu eftir daginn. Hún býr þarna í rosa stóru húsi og garðurinn er verðlaunagarður (hún flutti þarna í desember síðastliðinn). Börnin hennar voru farin að sofa því ég kom svo seint að þær höfðu gefist upp á að bíða þannig að ég sá þær bara sofandi; myndarstelpur báðar tvær.
Mamma átti afmæli í síðustu viku og bauð okkur í mat og hafði rjúpur..ummmmmm..jólin ;) Aumingja Dóri að missa af þessu hehe en ég át nú bara fyrir þig líka hafðu engar áhyggjur...Við reyndum að segja Hauknum að honum þætti þetta vont og hann gæti fengið nautakjöt en hann hlustaði ekki á okkur og nú er það aðal kvíðinn að honum hafi þótt rjúpurnar það góðar að hann eigi eftir að éta okkur hin út á gaddinn (as if)
Við fórum líka á geisladiskaútsölu hjá Japis á laugardaginn var og keyptum 14 diska (fyrir smá peninga). Að vísu var fullt að drasli en innanum voru fínir diskar og góð músík. Núna vantar okkur bara geisladiskarekka til að geyma diskana. Okkar eru löngu sprungnir.
Við erum að hugsa um að fara að mála baðherbergið og það er smá prósess. Við erum auðvitað ekki sammála um litinn, ó nei! Þannig að við erum búin að líma litaprufur upp um alla veggi og nú er ég hætt að sjá þær, bara eins og þær hafi alltaf verið þarna, sérlega glæsilegt skraut..hehe Gunnsan kom með þá hugmynd að veggfóðra með einhverju gamaldags fallega ljótu veggfóðri en Haukurinn var svo fljótur að líma litaprufurnar upp um alla veggi að ég skildi strax að sú hugmynd væri ekki inni..hehe..gaman að þessu...

script type="text/javascript" src="http://www.haloscan.com/load.php?user=annakr"> << Til baka


Powered by Blogger