Meinvill í myrkrunum

...and all of the angels..

22 maí 2006

Þá er fyrsta skakkalausa helgin liðin! Hann flaug yfir til Föröjanna á föstudag og svo héngu þeir hálfverkefnalausir alla helgina. Vel skipulagt! Ég er búin að vera svo kvefuð að ég hef ekki getað hreyft mig neitt að ráði. Mér finnst eins og ég hafi verið kvefuð alltaf og verði það alltaf. Dramatíkin að drepa mann rétt eins og áður.

Annars verð ég að viðurkenna að ég er búin að vera skemmta mér konunglega yfir heilsíðuauglýsingunum frá næsta júróvisjonfara. Eða manninum sem langar svo ofsalega mikið að vera sendur næst. Haha hugmyndin er góð. Eyða 100 þúsund kalli í auglýsingu um að senda hann næst. Úff held ég vilji frekar senda Silvíu aftur. Hún er þó alla vega töffari en ekki einhver væluskjóða (þó greyið hafi nú vælt smá eftir að hún tapaði en ég hefði gert það líka, svo varð hún aftur Silvía töffari).

script type="text/javascript" src="http://www.haloscan.com/load.php?user=annakr"> << Til baka


Powered by Blogger